AEG INNB. KÆLISKÁPUR 177 CM
HT925 505 360
Flottur kæliskápur, til innbyggingar, frá AEG.
Kæliskápurinn er með hraðfyrstingu, Al CoolAssist og innra rými hans er úr allt
að 70% endurunnu plasti. Hann er frábær lausn til að geyma mikið magn af mat á hagnýtan hátt. Flottur og stílhreinn kæliskápur með frysti sem
mun sóma sér vel í hvaða eldhúsi sem er.
169.990 kr.
Á lager
Upplýsingar
Kæliskápurinn
Er 195 lítrar að rúmmáli
með tveimur skúffum. Þrjár hillur eru í skápnum að auki er gott gleymslupláss í
hurð kæliskápsins. Þannig að þú hefur nóg pláss til að geyma matinn þinn.
Frystirinn
Með
62 lítra rúmmáli, tveimur skúffum og einni útdraganlegri hillu.
Hjálpin
Al CoolAssist tæknin er hönnuð til að bæta geymslu matvæla og spara orku
með því að læra á venjur þínar. Al CoolAssist er virkjað á stjórnborðinu.
Hitastilling
Al CoolAssist hitastilingin lærir á það hvenær og hversu oft kæliskápurinn
er opnaður og/eða hvenær nýjum matvörum er bætt inn í hann. Aðlagar kælistigið
út frá því og sparar þannig orku og viðheldur ferskleika matvaranna betur.
Sjálfvirk innkaupastilling
Varstu að fylla kæliskápinn af matvörum? Cool, sjálfvirk innkaupastilling
stillir hitastigið í kæliskápnum út frá því og kælir þannig nýju matvælin
fljótt og vel.
Sjálfvirk frístilling
Al CoolAssist skynjar að kæliskápurinn hefur ekki verið opnaður í nokkra
daga og virkjar þá sjálfkrafa frístillinguna.
Kælikerfi
Tvö aðskilin kælikerfi sem tryggja ferskleika
án þess að lofti úr frysti sé blandað í kæli og öfugt. Þannig haldast
ávextirnir þínir ferskir og ísinn í frystinum hélar ekki.
Stjórnborð
Er mjög einfalt og þægilegt í notkun. Notar „mode“ takkann til að fara á
milli aðgerða.
Hraðfrysting
Sem er
frábær þegar frysta þarf mikið magn af mat á fljótvirkan og skilvirkan hátt. Aðgerðin hækkar frystistigið niður í
ákveðin tíma og fer síðan sjálfkrafa aftur í fyrri
stillingu.
Lýsing
Góð lýsing er í
kæliskápnum en mikilvægt er að hafa góða birtu þegar þú opnar kæliskápinn þinn.
Veldu þann kæliskáp sem er með þeirri lýsingu er
best hentar þínum þörfum.
Viðvörun
Skápurinn lætur vita ef
hurðin á honum er of lengi opin eða ekki rétt lokuð. Lætur þig líka vita ef
hitastigið í honum verður óeðlilega hátt.
Lamir
Eru hægra megin en hægt er að breyta hurðaropnun.
Þrifin
Auðvelt er að halda kæliskápnum hreinum en þú einfaldlega þurrkar innan úr
honum annað slagið með rökum klút og hann mun alltaf líta út eins og nýr.
Og svo hitt
Flottur kæliskápur sem hentar fyrir öll heimili stór sem smá.
Eiginleikar
| Vörumerki | AEG |
|---|---|
| Orkumerking | E |
| Litur | Hvítur |
| Þyngd (kg) | 58 |
| Bluetooth | Nei |
| Lengd kapals | 2,4 m |
| Gerð / Sería | Til innbyggingar |
| Kælirými (L) | 195 |
| Frystirými (L) | 62 |
| WiFi | Nei |
| Stjórnborð | Skjár og takkar |
| Orkunotkun á ári | 216 kWh |
| Hljóðflokkur | 35 dB (B) |
| Hillufjöldi í kæli | 3 |
| Lýsing | LED |
| Extra Chill skúffa | Nei |
| Flöskurekki | Nei |
| Frystigeta á sólarhring | 4,5 kg |
| Hraðfrysting | Já |
| Hraðkæling | Já |
| Klakavél | Nei |
| Lamir | Hægra megin, snúanlegar |
| Lægsti umhverfishiti | 10° |
| Metal Cooling | Nei |
| Multi Flow | Nei |
| No Frost | Nei |
| Skúffufjöldi í frysti | 2 |
| Skúffufjöldi í kæli | 2 |
| Innbyggimál HxBxD (cm) | 178 x 56 x 55 |
| Tækjamál HxBxD (cm) | 177,2 x 54,6 x 55 |
| Hillufjöldi í frysti | 1 útdraganleg |
| Kælikerfi | TwinTech |
| Beintengdur við vatn | Nei |
| Vatnsvél | Nei |
| Módel númer | OSC7N181ES |
| Strikamerki | 7333394131344 |
| Endurunnið plast | 70 % að innan |
| Vörunúmer | HT925 505 360 |









