AEG Combiofn/Örb. 8000 MealAssist 44L Matt
HT944 005 216
AEG combiofninn er glæsilegur og gefur þér tækifæri
til þess að vera skapandi í eldhúsinu þínu. Hann er með örbylgjukerfi,
hraðhitun og helstu eldunarkerfum. Þessi glæsilegi combiofn fullkominn fyrir
minni eldhús eða sem aukaofn í þau stærri.
299.990 kr.
Á lager
Upplýsingar
Vegg- og örbylgjuofn
Auk þess að vera venjulegur ofn er hann líka örbylgjuofn sem eldar og hitar
mat mun hraðar og jafnar. Þú getur líka sameinað báða hlutana þannig að
réttirnir séu eldaðir t.d. á bæði blæstri og örbylgju.
My
AEG Kitchen App
Með
því getur þú stjórnað ofninum með símanum þínum. Hægt er að sækja appið annað
hvort í Play eða App Store. Eins er hægt að skanna QR-kóða sem er á miða inni í
ofninum.
Stjórnun
Ofninn
er með snertistjórnun sem er þægileg og einföld í notkun. Góður skjár sem sýnir
þér hvaða kerfi og hitastig þú ert að velja.
Sjálfvirkni
Ef opna þarf ofninn á meðan verið er að nota blástur þá slekkur hann á
blæstrinum á meðan. Ljósið í ofninum kveiknar sjálfkrafa um leið og hann er
opnaður og ef þú gleymir að slökkva á ofninum slekkur hann sjálfkrafa á sér.
Hraðhitun
Sem er snilld þegar mikið liggur á, virkjar aðgerðina og ofninn verður
heitur á mettíma.
Kerfin
Þú getur valið á milli hinna helstu eldunarkerfa eins og blástur, undir og
yfirhita, grill, örbylgjukerfi ásamt fleiri skemmtilegum kerfum t.d. hefun og diskahitun.
Köld framhlið
Hurðin er með IsoFront Plus framhlið og hitnar því ekki.
Fylgihlutir
1 grind, 1 grunn skúffa og 1 djúp skúffa.
Og svo hitt
Ofninn er með 44 lítra innra rými.
Eiginleikar
| Kjöthitamælir | Nei |
|---|---|
| Innbyggimál HxB | 450x560x550 |
| Sjálfhreinsibúnaður | Nei |
| Barnalæsing | Já |
| Þyngd (kg) | 36 |
| Gerð / Sería | Combiofn |
| Ofnrými lítrar | 44 |
| Lengd kapals | 1,5 m |
| Öryggi (amp) | 16 |
| Örbylgja innbyggð | Já, 1000w |
| Vörumerki | AEG |
| Litur | Matt Svartur |
| WiFi | Já |
| Stjórnborð | Snertiskjár |
| Ytri mál í mm HxBxD | 455x595x567 |
| Hjálparkokkur | Já |
| Hraðhitun | Já |
| Ljós í ofni | 1 Halogen |
| Mjúklokun á hurð | Já |
| Grill, vött | 1900W |
| Hitasvið gráður | 30°C – 230°C |
| Heildarvött | 3000W |
| Dual Cook | Nei |
| Dual Door | Nei |









