
Samsung 40" LCD Sjónvarp
LE40D555K1W
40" LCD - 5 Sería
Clear Motion Rate:: 50 Hz
1920 x 1080 Full HD
Clear Panel
High Contrast
Allshare (DLNA) Getur tengst þráðlaust við gemsa,myndavélar og tölvur
HD DVB-T/C Stafrænn móttakari
USB Movie (DIVX HD)
4 HDMI tengi, 2 scart, 2 USB, Component, Composite, VGA o.fl.
Snúningsfótur fylgir með
Verð: 159.900,- kr
Fimmta sería Samsung skilar öllum þínum væntingum og meira til. Tækin eru með Full HD sjónvarpsmóttakara sem opnar fyrir þér nýjar dyr í sjónvarps áhorfi. Uppfærðu sjónvarpið þitt og um leið líf þitt með Samsung LCD upplifuninni
AllShare heldur þér í sambandi
Samsung AllShare gerir þér kleift að tengjast öllum öðrum nettengdum tækjum heimilisins á auðveldan og þægilegan hátt. Í gegnum AllShare tengist þú meira að segja mörgum tölvum í einu sem gerir kleift að spila tónlistina, ljósmyndirnar eða bíómyndirnar þráðlaust.

Full HD 1080P
Full HD 1080p er tvisvar sinnum nákvæmari og með tvisvar sinnum hærri upplausn en hefðbundin háskerpu sjónvörp. Full HD skilar ríkari litum, skýrari smáatriðum og leiðréttir jafnvel gallana úr myndefni með hefðbundinni upplausn. Þetta er raunveruleg háskerpa.

Anynet+
Einfaldaðu líf þitt með Anynet+ sem gerir þér kleift að stjórna heimabíói, DVD spilara eða upptökuvél með sjónvarpsfjarstýringunni. Segðu bless við sófaborð fullt af fjarstýringum því þú þarft bara þessa einu.

4 HDMI tengi
Það eina sem þarf er eitt tengi til að tengja saman sjónvarpið þitt við önnur tæki. HDMI raufarnar leifa þér að skila öllu efni án nokkurrar þjöppunar beint uppá skjáinn þinn þar á meðal tölvuna, upptökuvélina eða flakkarann þinn. Það hefur aldrei verið auðveldara að upplifa þitt eigið efni á alvöru háskerpu sjónvarpi.

Wide Colour Enhancer Plus
Það sem allir sjónvarpsframleiðendur reyna er að skapa raunveruleika í gegnum liti og ljós. Þetta tókst Samsung með Wide Colour Enhancer Plus kerfinu. Eftir að hafa greint hvern punkt teygir tækið þá að topp myndgæðum. Það sem þú færð eru fyllstu og líflegustu litir sem þú hefur nokkur tíman séð í sjónvarpi.

Spilaðu myndirnar þínar beint af USB
Tengdu flakkara eða minnislykil við tækið með lítilli fyrirhöfn og byrjaðu að njóta enn meiri afþreyingar en áður. Tækið spilar meða annars MKV multi HD format svo þú átt ekki að vera í vandræðum með eina einustu mynd


