
Samsung Lita-laserprentari
CLP-320N
Prenthraði: 16 bl./mín, 4 bl./mín í lit
Fyrsta blaðsíða út: 14-26 sek.
Upplausn: 2400x600dpi
Pappírsbakki inn: 130 blöð
Pappírsbakki út: 80 blöð
Örgjörvi: 360MHz
Minni: 256 MB
Hljóðmagn: <45dBA í prentun, <33dBA í bið
Stuðningur: Windows, Mac OS 10.3x og Linux
Nettenging: LAN
Stærð hxbxd: 388 x 313 x 243 mm
Þyngd: 11 kg.
Verð: 39.900,- kr
Sparsamur
Á nútíma skrifstofum er ekki pláss fyrir orkufrek tæki. Þess vegna hefur Samsung staðsett sparnaðarrofann á CLP-320N að framanverðu, aðgengilegan fyrir alla.

Nettengjanlegur
Tengdu hann við innra netið þá geta allir prentað sem eru tengdir inn á sama net. Með þessu sparast tækjakaup og rekstrakostnaður.

Tilvalinn fyrir lítil rými
Hann er aðeins 388 x 313 x 243 mm sem þýðir að Samsung CLP-320N kemst haganlega fyrir á skrifborðinu án þess að skerða borðplássið.

Hljóðlátur
Þú ættir ekki að verða fyrir óþægindum vegna hávaða við vinnuna. Samsung CLP-320N er hannaður með það fyrir augum að vera hljóðlátur. Hann mælist aðeins 45 dBA (lit) og 47 dBA (svart/hvítt). Það er minna en suðið frá kæliskáp.

Prentaðu það sem þú sérð á netinu
Samsungs "AnyWep Print" er tól sem gerir útskriftir af vefsíðum þægilegar. Þú einfaldlega dregur og sleppir efni af ólíkum vefsíðum í sérstakt úrklippihólf og safnar þeim saman á meðan þú vafrar um á netinu. Síðan er bara að skrifa út eða geyma í ólíku formi.

Hraðvirkur
Leiðist þér biðin? Samsung CLP-320N hefur mikinn útskrifarhraða, 16 baðsíður á mínútu í svart/hvítu og 4 blaðsíður á mínútu í lit. Úr viðbragðsstöðu eru 14 sekúndur í fyrsta blað í svart/hvítu og 26 sekúndur í lit. Hún er eftirtektarverð upplausnin í útskriftinni, 2400 x 600 dpi, og uppfyllir gæðakröfur þínar.

Eintóm litagleði
CLP-320N skilar fyrsta flokks litprentun, þökk sé mikil upplausn upp á 2400 x 600 dpi.


