
SAMSUNG FJÖLNOTA PRENTARI, LJÓSRITUN, SKANNI
SCX-3205
Sv/Hv Prentari, Skanni og Ljósritun
Prentari:
Tegund: Laserprentari, svarthvítur
Prenthraði: 16 bl./mín.
Fyrsta blaðsíða: 8,5 sek.
Upplausn: 1200x1200dpi
Skanni og ljósritun:
Upplausn: 1200x1200dpi (4800x4800dpi)
Almennt:
Pappírsbakki: 150 blöð inn / 50 blöð út
Minni: 128 MB
Stuðningur: Windows, Mac OS, Linux,
Verð: 29.900,- kr
Engin tengingarvandamál - einn smellur
Þú tengir prentarann við þráðlausa heimanetið með einum smelli á WPS-takkann (WiFi Protected Set-up) á prentaranum og einnig á beininum og þú ert klár. Á öðrum þráðlausum einingum er algengt að þú þurfir að slá inn nafn/númer á þráðlausa netinu og handvirkt slá inn öryggiskóða. Með þessum prentara ertu laus við allt slíkt. En með okkar notendavæna "One Touch Wi-Fi Setting" fítus gerist allt sjálfvirkt.

Ekkert snúruvesen með þráðlausum prentara
Þráðlaus útprentun. Vertu laus við allar snúrur á milli tækja. Einnig geturðu tengt margar tölvur við einn prentara það sparar rafmagn og tækjakaup.

Sparar pappír, tóner og tíma
Með einum takka geturðu prentað tvær síður á eitt blað með því spararðu, tóner, pappír og tíma. Takkinn er aðgengilegur á framhlið prentarans.

Fyrirferðalítill og meðfærilegur
Prentarinn er aðeins 388x299x234mm og er minnsti fjölnota laserprentarinn á markaðnum, lítill og afkastamikill, passar á hvaða skrifborð sem er.

Allt sem þú þarft, beint á skrifborðið
Afköst og skilvirk vinnubrögð eru mikilvæg hverju starfi. Með þessum fjölnota prentara geturðu prentað, ljósritað og skannað á einfaldan og skjótan máta. Afhverju að fylla skrifstofuna af tækjum af ólíkri gerð þegar allt sem þú þarft er SCX-3205W fjölnotatæki, þrjú tæki í einu.

Hraðstart og gæða útprentanir
Ertu þreytt/-ur á að bíða eftir útskriftum. Samsung SCX-3205W hefur mikinn prenthraða (16 bls/mín í A4) og er fljótur í gang úr biðstöðu, aðeins 8,5 sekúndur og skilar góðri upplausn 1200 x 1200 dpi sem uppfyllir kröfur um hraða og gæði.

Ótrúlega hljóðlátur
Þú átt ekki að þurfa að ærast við vinnuna. Þess vegna er Samsung SCX-3205W mjög hljóðlátur aðeins 49 dBa í útskrift. Það er minna en suðið frá kæliskáp.

Þægilegir útskriftarmöguleikar
Samsungs "AnyWep Print" er tól sem gerir útskriftir af vefsíðum þægilegar. Þú einfaldlega dregur og sleppir efni af ólíkum vefsíðum í sérstakt úrklippihólf og safnar þeim saman á meðan þú vafrar um á netinu. Síðan er bara að skrifa út eða geyma í ólíku formi.


