
Samsung 21,5" Tölvuskjár
EX2220
Samsung EX2220 Professional
21,5" LCD-tölvuskjár
Upplausn: 1920 x 1080
Skerpa: Mega contrast (1000:1)
Svartími: 5 ms
Litafjöldi: 16,7 milljónir
Sjónsvið: 170°/160°
DVI tenging með HDCP stuðning,
Tengingar: DVI-I (digital) og VGA
Straumnotkun 22W, í bið 0,3W
Verð: 39.900,- kr
Færðu vinnuna uppá hærra stig með Samsung EX2220 sem hentar bæði sem öflugur vinnuskjár jafnt og skjár til heimilisins. Sjónræn upplifun þín hámarkast með Mega Dynamic skerpu og Magic möguleikunum frá Samsung. Skjárinn er með svartíma uppá 5ms sem gefur þér forskot í tölvuleikjum. Nýr og umhverfisvænni tölvuskjár sem tryggir allt að 40% minni orkunotkun en áður.
Fullkomin háhraða skjár (Magic Speed)
Tölvuskjáir með magic speed eru mun hentugri en hefðbundnir tölvuskjáir til leikjaspilunnar þar sem uppfærsluhraðinn er mun meiri eða frá 6 til 8 ms.

Mega colour, Mega contrast, Mega upplifun
Það er dínamískt og svo er Mega dínamískt. Með hærra skerpustigi, því hæsta sem mögulegt er skilar Samsung tölvuskjárinn þinn þér myndgæðum eins og þú hefur aldrei áður séð, með dýpri og ríkari litum en þú getur ýmindað þér.

Sparaðu pláss og verndaðu umhverfið
Ultra slim LED skjáirnir eiga ekki eingöngu eftir að umbylta allri tölvuuplifun þinni heldur eru þeir líka umhverfisvænir og eyða mun minni orku.

Sparar orku og er umhverfisvænn.
Framleiddur með umhverfisvænan notenda í huga. Samsung tölvuskjárinn notar 40% minni orku og er þar afleiðandi skilvirkari en hefðbundnir skjáir. Með því að fækka LED díóðunum og skipta yfir í standby ham þegar hann er ekki í notkun eyðir hann ekki nema 0,3W á móti 1,0W áður.

Tölvuskjár sem sýnir frumkvæði við að deila
Með Magic Return frá Samsung þarftu ekki að hafa áhyggjur af því að tapa efni af aukaskjánum þínum, ef aukaskjárinn er tekinn úr sambandi færir hann sjálfkrafa efnið yfir á hinn skjáinn. Það eru engin töfrabrögð notuð í þetta, Samsung hefur bara fært það að deila gögnum á skjái yfir í vísindi og nær með því að vera tilbúinn fyrir það að skjánum sé kippt úr sambandi án nokkurrar viðvörunar.
Stjórnar birtunni, sparar orku
Magic Eco sér til þess að skjárinn notar aldrei meiri orku en þörf er á. Þú getur valið um að nota 100%, 75% eða 50% orkusparnað eða að hafa slökkt á orkusparnaði.

Fullkomin myndgæði með HDCP
HDCP (Vernd á Há-bandvíddar stafrænu efni) DVI gerir þér kleift að koma ljósmyndum frá tölvunni þinni í mun hærri upplausn en áður með VGA. Nær fullkomin upplausn frá tölvunni þinni.

Breyttu litunum eins og þér sýnist
Þú getur stillt fjóra mismunandi effecta á skjánum: Grayscale, Green, Aqua, Sepia.

Slekkur sjálfur á sér
Samsung tölvuskjáirnir eru ekki eingöngu öflugir í virkni heldur eru þeir umhverfisvænir. Tímastillir sem gerir þér kleift að stilla að skjárinn slökkvi á sér á tilteknum tíma gerir það að verkum að hann eyðir minna rafmagni og hámarkar endingatíma sinn.

Sérsniðnar stillingar
Með magic tune getur þú gert þínar skjástillingar beint á skjánum með músinni. Þú getur breitt skjástærð, birtu, skerpu og litum.

Smart Size
Hversvegna ættu myndirnar þínar að skila sér í vitlausum hlutföllum á skjáinn hjá þér? Samsung Smart Size sér til þess að ljósmyndirnar þínar skila sér í réttum hlutföllum í stað þess að fylla út í skjáinn.

Minnkaðu álag á augun og njóttu þess þannig betur að horfa
Hvernig viltu horfa á bíómyndir? Viltu liggja í sófanum? Sitja í uppáhalds stólnum þínum? Við eldamennskuna eða líkamsrækt? Hvort sem þú stendur, situr eða liggur ætti ekki að skipta máli því Magic Angle frá Samsung sér til þess að myndin á skjánum er alltaf í aðalhlutverki.


