HTH Innréttingar

Nýtt eldhús - ekkert mál!

Hinar glæsilegu dönsku HTH innréttingar hafa verið framleiddar síðan 1966 svo að þar eru fagmenn sem vita sínu viti. Þegar hugað er að nýju eldhúsi eru möguleikarnir nánast óþrjótandi - skiptir þá engu hvort það er stórt eða lítið. Fjölbreytt geymslurými ásamt öllum litlu smáatriðunum skapa andrúmsloft þæginda og glæsileika. Við hjá HTH getum komið með hugmyndir sem veita ykkur innblástur til að sjá eldhúsið ykkar í nýju ljósi. Í sýningarsal okkar í Ormsson húsinu á horninu í Lágmúla 8 getur þú upplifað sanna HTH stemningu. Hvort sem þú ert að leita að innréttingum í eldhúsið, baðherbergið, þvottahúsið eða fataskápa finnur þú örugglega það sem hentar hjá okkur.

Allar HTH innréttingar eru sérpantaðar samkvæmt hönnunarteikningum okkar og koma samsettar til landsins.

Frá upphafi færðu faglega aðstoð frá söluráðgjafa HTH sem samhæfir innréttingar, framleiðslu, afhendingu og uppsetningu á nýja eldhúsi þínu. Í stuttu máli er HTH auðveldasta leiðin að nýju eldhúsi


Þegar þú kaupir innréttingar í Ormsson, getur þú verið viss um að við gerum vel við þig þegar kemur að kaupum á AEG eldhústækjum.

Smelltu hér til að skoða nýja HTH bæklinginn fyrir eldhúsinnréttingar

Smelltu hér til að skoða nýja HTH bæklinginn fyrir baðinnréttingar

 


 

 

Efst á síðu