Um fyrirtækið

Fyrirtækið Bræðurnir Ormsson var stofnað 1. desember 1922 af þeim bræðrum Eiríki og Jóni Ormssyni og hefur fyrirtækið verið í eigu afkomenda þeirra meira og minna frá stofnun fram til dagsins í dag.  Upphaflegur tilgangur félagsins var rekstur rafmagnsverkstæðis, en fljótt þróaðist reksturinn á þann veg að hafinn var innflutningur á vörum framleiddum af AEG, en fyrirtækið hefur verið umboðsmaður þess vörumerkis frá 1923.  Á seinni árum hafa vörur frá mörgum öðrum leiðandi framleiðendum bæst í flóruna eins og t.d. HTH, Samsung, Nintendo, Sharp, Pioneer, Olympus, Hama, Tefal, Brabantia, OBH Nordica, Casio, Loewe, Verbatim, Jamo, Trendnet, Scull Candy, Celestron og mörgum fleiri.

Á þeim langa tíma sem fyrirtækið á að baki hefur hefur rekstur þess breyst töluvert og í dag býður fyrirtækið upp á fjölbreytt úrval af vörum en meginstarfsemin fólgin í innflutningi og sölu heimilistækja, sjónvarpa, hljómtækja og innréttinga.  Bræðurnir Ormsson leggja mikið upp úr því að veita góða þjónustu og selja eingöngu gæðavörur á sanngjörnu verði,  Við störfum eftir markmiðinu "Gerðu kröfur við uppfyllum þær".  Verslanir Bræðranna Ormsson eru í Lágmúla 8 Reykjavík, Síðumúla 9 Reykjavík, Hafnargötu 25 Reykjanesbæ og á Furuvöllum 5 Akureyri en einnig eigum við í góðu samstarfi við verslanir um allt land. 

Efst á síðu